August 28, 2008

Lúsiferin komin með blogg!

já lúsiferin er komin með blogg! maður hefur nefininlega svo mikið að segja!
Þar sem að maður er búinn að vera duglegur alla vikuna að taka til þá verður maður að fá smá frí í einn dag eða svo!

Ég var að hugsa um að koma með svona hugsanir lífsins hérna inn!

Hvað finnst foreldrum um það að börnin þeirra séu hálfber úti? Ég var að keyra út í sveit um daginn og sá þá einhverja gellu með bolinn fyrir neðan brjóstin? skil nú ekki ástæðuna til að vera þá í bol, það sást vel í brjóstin á stelpunni og brjóstarhaldarann, hvað finnst foreldrunum um þetta? er ekki verið að fylgjast með þessu?? Börn eru svo mikil börn nú til dags! það er alveg svakalegt hvað þau eru lengi að þroskast, og ég tel að ástæðan sé sú að þessi börn þurfa ekki að geera neitt! þau fá allt uppí hendurnar! ég var farin að passa börn þegar ég var 9-10 ára, núna þegar ég sé 10 ára krakka, þá get ég ekki ýmindað mér að þau geti litað! hvað þá passað!
ætli ég hafi verið í mjög fljótþroska árgangi?


Lúsiferin kveður