September 1, 2008

átak átak átak!

alltaf er maður að fara í átak! og aldrei gerist neitt!
hinsvegar er ég búin að vera að mæta skynsamlega í ræktina í mánuð eða meira, ég er búin að taka helvítis mataræðið í gegn og er bara með einn nammidag í viku! þessum nammidegi verð ég örugglega að sleppa!
ég heng alltaf í sömu þyngdinni, sama hvað ég fer oft í ræktina og hvað ég borða hollt þá minnkar talan ekki! ég er orðin svo þreytt á því að reyna endalaust að léttast og ekkert gerist, auðvitað gefst maður upp á endanum! :(
Eeeeeen að gefast upp er bara fyrir aumingja!!!
þannig að á morgun ætla ég að byrja á "danska kúrnum", ætla auðvitað ekki að fara á fundi og þessháttar heldur ætla ég bara að reyna að borða það sem er ætlast til af manni :) Þannig að þið megið endilega vera ótrúlega asnalega supportive þannig að ég verði alveg bara "hey jeeey ég get þetta, allt þetta anonymous fólk hefur trú á mér" :P
En jááá.. og ef þið eigið einhverjar góðar og skemmtilegar DDV uppksriftir þá megiði sko endilega dömpa þeim á mig!!

yfir og út!

2 comments:

Anonymous said...

mæli með ddv.barbietec.com. Fullt af uppskriftum og góðum ráðum

Anonymous said...

Maður segjir hangi, ekki heng.. Og hvað var þetta daim sem þú borðaðir í miðri viku?